April 25th, 2009
Platan Stop! Handgrenade in the Name of Crib Death ‘nderstand? er nú fáanleg á geisladisk í plötuverslunum um land allt. Platan inniheldur 13 lög, meðal annars lagið St. Peters Day sem ómað hefur í útvarpi undanfarnar vikur. Að auki verður hún plata næstu viku hjá hinu margrómaða popplandi!
Crib Death var tekin upp á Trönum í Borgarnesi í fyrrahaust ásamt hljómanninum Friðriki Helgasyni, sem einnig er trommuleikari síðrokksveitarinnar bob.
Plötuna er einnig hægt að kaupa á stafrænan máta á síðunum tonlist.is og grapewire.net en þar er einnig hægt að kaupa geisladiskinn og fá hann svo sendan heim.
Sudden Weather Change hafa verið að geta sér mjög gott orð undanfarin ár og þykja í dag eitt efnilegasta rokk band landsins, og ein sú flottasta “live” hljómsveit sem komið hefur fram á sjónarsviðið nýlega.
Þann 16. maí ætla strákarnir svo að blása til útgáfutónleika á Grand Rokk. Þar munu þeir leika öll lögin af nýju plötunni og ætlast til að skilja gesti eftir stjarfa af aðdáun. Hljómsveitirnar bob og Skátar ætla að spila með þeim - bob verða á undan, en Skátar verða á eftir Sudden Weather Change á þessu stórspennandi laugardagskvöldi. Frítt verður inn á viðburðin en hægt verður að kaupa alveg helling af sniðugum varningi, þar á meðal, að sjálfsögðu, S!HITNOCD’?
Frekari upplýsingar fást á http://www.kimirecords.net og á facebook síðu hljómsveitarinnar: http://www.facebook.com/pages/Sudden-Weather-Change/59516217460 en þar er hægt að hlusta á plötuna í heild sinni í nokkra daga.
Á facebook síðunni verður einnig efnt til keppnis nú á dögunum, þar sem aðdáendur eru hvattir til að endurskapa myndina framan á umslagi plötunnar, en þar má sjá Dag, einn gítarleikara sveitarinnar, og Loga Pedro úr Retro Stefson, í góðu fjöru á Aldrei fór ég suður hátíðinni, 2008. Sigurvegarar munu hljóta að vinningi títtnefnda plötuna ásamt einhverju fleira.
Stop! Handgrenade in the Name of Crib Death ‘nderstand?
Tags: Kimi, sudden weather change
Posted in fréttir | No Comments »
March 5th, 2009
Hljómsveitin Skátar hafa sent frá sér vínilplötuna “Goth báðum megin“. Skífa þessi átti upprunalega að koma út í október í fyrra en tafðist í sífellu sökum “ástandsins” sem allir landsbúar þekkja og er ekki ætlunin að tíunda mikið um það hér. Í stuttu máli sagt lögðu Skátar í september inn pöntun fyrir framleiðslu á vínilplötu hjá bandarísku fyrirtæki sem sérhæfir sig í því og stóð bandaríski dollarinn í 75 krónum eða þar um bil. Svo kom október með tilheyrandi skell og við þekkjum söguna sem enn er í fullri ritvinnslu.

goth báðum megin
“Goth báðum megin” var tekin upp á rúmri helgi um miðjan ágúst af Inga Þór Ingibergssyni í Stúdíó Lubba í Keflavík og Þóri Georg Jónssyni í æfingarhúsnæði hljómsveitarinnar Kimono í Reykjavík. Tökurnar voru í sömu viku sendar rakleiðis til San Francisco þar sem þær voru hljóðblandaðar af upptökustjóranum Jay Pellicci sem unnið hefur nafntoguðum tónlistarmönnum á borð við Deerhoof, Cody Chesnutt, Subtle, Erase Errata og Mates of State. Hljóðblöndun fór fram í Hyde Street-hljóðverinu í San Francisco sem er þekkt í þeirri borg og hafa ekki ómerkari tónlistarmenn en Shaquille O’Neal og Tupac Shakur tekið þar upp. Skátar telja fyrir víst að andi hins síðarnefnda hafi svifið yfir á meðan lögin voru blönduð. Hljómjöfnun fór fram hjá J.J. Golden í Golden Mastering og er hann einnig mjög nafntogaður.
Félag Tónskálda og texthöfunda (FTT) styrkti útgáfuna og kunna Skátar því miklar þakkir. Í kjölfar styrkveitingarinnar fór í gang ritdeila á milli Stefáns nokkurs Hilmarssonar og Sverris Stormskers. Sá síðarnefndi hreytti fúkyrðum í Skáta og skrifaði um þá sem óþekkt og hæfileikasnautt bílskúrsband sem ætti ekki skilið að fá styrk, Stefán var á öndverðu meiði og kunna Skátar honum bestu þakkir fyrir enda sannarlega vörn úr óvæntri átt.
Í tilefni útgáfunnar hafa Skátar hent nýju lagi af plötunni inn á Myspace. Það heitir Pantee Lions (Riding Beasts at the Mini-Bar) og kemur það til með að hljóma á öldum ljósvakanna um ókomna tíð.
“Goth báðum megin” er í búð GrandmothersRecords
Tags: goth báðum megin, grandmothers records, skátar
Posted in fréttir | No Comments »
March 4th, 2009
GusGus spiluðu síðast hér á landi á síðustu Iceland Airwaves við frábærar undirtektir tónleikagesta og tónlistarskríbenta, inn- sem og erlendra. GusGus spiluðu einnig á nokkrum tónleikum erlendis seint á síðasta ári, þ.á.m. í Bern, Moskvu, Tokyo og í Berlín þar sem þeir spiluðu á showcase-tónleikum á vegum nýrrar bókunarstofu þeirra, Wilde Bookings. Berlín-tónleikarnir voru lofaðir hástert af þýskum fjölmiðlum og sjónvarpstöðinni MTV sem voru á tónleikunum ásamt útsendurum virtra hljómplötuútgáfa sem hafa verið áhugasamar um hljómsveitina.
GusGus hafa fyllt Nasa í hvert einasta skipti sem sveitin hefur troðið þar upp. Á tónleikum verður sérútbúið ljósa-show sveitarinnar og hljóðkerfi verður lagað að þeirra þörfum svo að áhorfandinn fái sem mest útúr upplifuninni sem tónleikar GusGus eru.
GusGus hafa klárað lokahnykkinn á sjöttu hljóðversskífu sinni og hefur hún hlotið heitið “24/7″ eins og áður hefur komið fram. Breiðskífan var að mestu leyti unnin af meðlimum sveitarinnar, þeim Birgi Þórarinssyni (e.þ.s. Veiran), Daníel Ágúst Haraldssyni og Stephan Stephenssen (e.þ.s. President Bongo) í Tankinum við Önundarfjörð og í hljóðveri GusGus í Reykjavík. “24/7″ kemur út í júní hjá einu raftónlistarfyrirtæki í heiminum í dag.
Þangað til getum við nálgast eldri plötur og ófáenleg lög úr GusGus búðinni
Tags: gusgus
Posted in fréttir | No Comments »
February 9th, 2009
We can rejoice as gusgus have now completed a new album to be released in the very near future.
But not only that but also they have line up a bunch of new dates around the globe.
Through the years they have been prolific in remixing and many of them pretty obscure and hard to find.
This is now rectified with their new shop where most of these can now be had, found and bought!
Tags: gusgus
Posted in fréttir, news | No Comments »
February 7th, 2009

The DVD, Live in Reykjavik features 20 songs recorded by Mezzoforte in a special 10 piece version of the band during 3 concerts in Reykjavik, Iceland in march of 2007. Bonus material consists of footage from rehersals as well as a slideshow of photos spanning the band’s carreer.
Live In Reykjavik is released in 4 versions: As a 2CD set, as a DVD, as a Deluxe Edition with special liner notes and bonus tracks and last but not least, as 2 Vinyl-LPs!
Only the regular DVD is available here.
Other versions are available in shops (first in Europe and later around the world) or through www.zyx.de.
Bonus material includes footage from rehersals, old videos and photos covering the band’s 30 year history.
Recorded and filmed in Borgarleikhus, March 26 & 27, 2007 - Iceland
www.mezzoforte.com
Tags: mezzoforte
Posted in fréttir, news | No Comments »