Rafskinna komin á Netið
Rafskinna er sjónrit hugsað sem
1. vettvangur fyrir sjónlistir og annað sjónrænt efni á Íslandi
2. hvati til framleiðslu á slíku efni
3. kynning á mynd- og tónlistarmönnum, hönnuðum, arkitektum, skáldum og öðrum skapandi mönnum, íslenskum og erlendum, gömlum og nýjum, körlum og konum, jafnt innan lands sem utan. Þess vegna er hún bæði í senn á ylhýrri íslensku og enskunni júnívörsal.
Rafskinna einskorða sig ekki við t.d. stuttmyndir eða tónlistamyndbönd en heldur utan um allt sem er rafrænt og hreyfist, auk þess sem pláss gefst í prentefninu fyrir texta, ljósmyndir og teikningar. Í Rafskinnu má finna efni sem hefur fram að útgáfu ýmist ekki verið aðgengilegt, ekki sést lengi eða einungis birst á Netinu í ófullnægjandi gæðum. Til viðbótar við birtingar á áður framleiddu en sjaldséðu eða ill-fáanlegu efni framleiðir Rafskinna og lætur framleiða töluvert af nýju efni fyrir hvert tölublað sem gefur því vikt í samtímanum auk þess að auka á heimildagildi þess.
Hið gamla fær engu að síður líka sinn sess, enda ekkert nýtt undir sólinni.







