Heildarsafn Bergþóru Árnadóttur

 

Út er komið safn 5 geisladiska sem spanna feril vísnasöngkonunnar Bergþóru Árnadóttur. Úgáfan hefur að geyma allar helstu hljóðritanir Bergþóru sem út komu á árunum 1977 – 1987, en auk þess tónleikaupptökur og lög af safnplötum - samtals rúmlega 100 lög. Í veglegum, myndskreyttum bæklingi rekur Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson tónlistarferil Bergþóru, en hún var á sínum tíma eitt fremsta söngvaskáld þjóðarinnar og lengi vel eina konan  því sviði.

Hljóðvinnsla vegna endurútgáfunnar var í höndum Bjarna Braga Kjartanssonar,  útlit og umbrot annaðist Birgitta Jónsdóttir

Share and Enjoy: These icons link to social bookmarking sites where readers can share and discover new web pages.
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google

Leave a Reply


Grapewire is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!