BenniHemmHemm ekki lengur í leyni
Thursday, January 3rd, 2008okkur barst þetta skeyti frá BHH:
“Allar plötur Benna Hemm Hemm fást nú á hinu stórfenglega alneti í gegnum hina frábæru vefsíðu Grapewire!
Ber sérstaklega að nefna nýjustu smábreiðskífu hljómsveitarinnar, Eina í leyni. Hana er hægt að kaupa bæði sem niðurhal og sem póstsendan geisladisk á ótrúlega góðu verði, en geisladiskurinn er gefinn út í afar takmörkuðu upplagi.
Hér fara kaupin á eyrinni fram: http://bennihemmhemm.grapewire.net/
Gleðilegt ár!
Benni Hemm Hemm”





