Posts Tagged ‘airwaves’

Hljómsveitir á Airwaves

Thursday, October 11th, 2007

Í tilefni af Icelandairwaves 2007 hafa Hr Örlygur og Grapewire lagt af stað með þá nýjung að bjóða hljómsveitum að hlaða inn lögum í sérstaka tónlistarveitu tileinkaða hátíðinni, en þar gefst hljómsveitum hátíðarinnar að bjóða uppá og selja áfram tónlist sína.

Sérstök vefbúð verður rekinn á slóðinni
http://airwaves.grapewire.net
og er þetta nauðsynleg viðbót við þá kynningarstarfsemi sem hátíðin býður uppá.

Grapewire er ný rafræn dreifing og miðlun efnis á Netinu og knýr fyrirtækið sem dæmi nýjan vef Smekkleysu SM, Mugison og fleiri.

Þeir sem hafa áhuga á að senda inn og selja tónlist sína skulu taka hana til og brenna á disk í fullum gæðu, það er á wav, aiff eða apple lossless.Tónlistinni verður síðan varpað í 320 kbita mp3 og aac. Einnig þarf mynd af listamanni eða hljómsveit að fylgja, sem má nota.


Grapewire is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!