Maus - Cover my Eyes
Sunday, July 27th, 2008
Að tilefni þess að 15 ár eru liðin frá því að Maus var stofnuð hefur hljómsveitin ákveðið að sleppa áður óútgefnu lagi lausu. Um er að ræða síðasta lagið er sveitin hljóðritaði áður en hún fór í pásu í lok árs 2004. Lagið heitir Cover My Eyes og var unnið með þýska upptökustjórateyminu er starfar undir heitinu Topspin Music. Þá sömu og gerðu plötuna Musick með sveitinni.
Maus hefur aldrei gefið út dánartilkynningu sína og er eina ástæðan fyrir því að sveitin hefur ekki komið fram á tónleikum síðan í nóvember 2004 sú að liðsmenn búa ekki í sama landi. Lítið sem ekkert hefur verið rætt um framhaldið en liðsmenn eru allir á því að taka upp þráðinn af einhverju leiti þegar tækifæri til þess gefst á ný. Það má þó ekki búast við því í nákominni framtíð.
